Bjartur og 3SH ætla að taka höndum saman og halda samhjól á
gamlársdagsmorgun. Hjóluð verður skemmtileg leið sem hentar öllum og
eftir túrinn verður þátttakenndum boðið í heitu pottana í Sundhöll
Hafnarfjarðar.
Lagt verður stundvíslega af stað kl. 09:30 frá Sundhöll Hafnarfjarðar.
Hjólað verður í ca. einn og hálfan klukkutíma, á hraða sem hentar öllum
og verður hópnum reglulega safnað saman.
Leiðin er um 35 kílómetrar og að mestu flöt. Gert er ráð fyrir tveimur stuttum stoppum.
Eftir túrinn er síldarveisla í andyri Sundhallarinnar og í boði verður
að skella sér í heitu pottana. Munið eftir sundfötum og góða skapinu.
“Gamla” sundhöllin er á Herjólfsgötu 10 í vesturbæ Hafnarfjarðar. Ef
hjólaður er strandstígurinn þá er ekki annað hægt en að rekast á hana.
Sundhöllin var fyrsta sundlaugin í Hafnarfirði og er þekkt fyrir sitt
rólega andrúmsloft og rómaða umhverfi.
Viðgerðarmaður Bjarts verður á staðnum ef eitthvað klikkar.
Kort: http://goo.gl/maps/xEW9l
Facebook event: https://www.facebook.com/events/206883062782559/?ref=ts&fref=ts
Kveðja, stjórn Bjarts