Okkur hafa borist nokkrar fyrirspurnir vegna ferðar okkar í Þjórsárdal 18 júlí. Nú setur covid smá strik í reikninginn og við vitum ekki hvort ástandið verði óbreytt eða hafi breyst til hins betra eða verra. Í dag er til dæmis mælt með því að fólk ferðist ekki saman í bílum (nema það búi saman), það eru fjöldatakmarkanir í skálum og það þarf að halda tveggja metra fjarlægð.

Planið er að sameinast í bíla, hittast á Sandártungum um kl 11 á laugardegi, hjóla um línuveg, skoða Hjálparfossinn og hjóla um skógi vaxnar hlíðar aftur að bílunum. Línuvegurinn er grófur yfirferðar en skógarstígarnir auðveldir. Dagleiðin er 25 km og við áætlum að 4-5 tímar fari í hana. Keyrum yfir í Hólaskóg, sem er skáli með svefnpokagistingu. Sameiginleg máltíð um kvöldið og hafragrautur í morgunmat. Það þarf að taka með nesti fyrir hjólaferðirnar.

Næsta dag hjólum við frá skálanum, 30 kílómetra, allt á malarvegum. Komum við í Gjánni og skoðum þjóðveldisbæinn Stöng. Hjólaferðin á sunnudegi mun taka 4-5 tíma, enda er margt að sjá og óendanleg náttúrufegurð sem þarf að gefa sér tíma í. Við munum t.d. ganga niður í Gjána og gera gott stopp þar.

Á leiðinni í bæinn munum við stoppa í einhverri hamborgarabúllu og fá okkur snæðing áður en leiðir skilja og hver heldur til síns heima.

Verð er 10 þúsund pr mann (innifalið gisting, kvöldverður og hafragrautur næsta morgun), ef fólk þiggur far, þá greiðir það bílstjóra 3000 fyrir sig og reiðhjólið. Þetta verð miðast við félagsmenn, árgjaldið er 2500 krónur sem myndi þá bætast við fyrir utanfélagsmenn.

Erfiðleikastig er 5 af 10, allir í sæmilegu hjólaformi ráða við þessa ferð. Ef þú ert í vafa, þá er um að gera að skella sér í þriðjudagskvöldferð og kanna þolið, hún tekur um 2 tíma. Sjá nánar um þær hér:

https://fjallahjolaklubburinn.is/dagskra/hjolaferdir

Fjöldi verður takmarkaður, ef fólk vill tryggja sér pláss má hafa samband við umsjónaraðila ferðarinnar, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Vinsamlega takið fram fjölda og hvort ykkur vantar far eða getið boðið far.