Í vetur verður haldið áfram með hjólreiðaferðir frá Hlemmi á laugardagsmorgnum. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í borginni. Þessar ferðir eru ekki ósvipaðar þriðjudagskvöldferðum Fjallahjólaklúbbsins á sumrin en áherslan er hér á samgönguhjólreiðar í borginni og mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.

Fyrsta ferðin verður farinn laugardaginn 1. október 2011. Síðan verður farið hvern laugardag fram til 26. nóvember. Vikulegar upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna.

Mæting er á Hlemmi milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15.  Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borgina og höfuðborgarsvæðið eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma.

Sjá nánar hér .