Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn 25. október 2018, Brekkustíg 2, kl. 20.

Jafnframt er auglýst eftir framboðum til stjórnar klúbbsins. Þeir sem hyggja á framboð, sendi tilkynningu í netfangið ifhk@fjallahjolaklubburinn.is

Stjórn félagsins er kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnina skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Einnig skal kjósa endurskoðanda og formenn nefnda.

Ennfremur er auglýst eftir tillögum að lagabreytingum. Þær verða að berast stjórn ÍFHK amk. 14 dögum fyrir aðalfund. 

Dagskrá aðalfundar:

  • 1. Kosning fundarstjóra.
  • 2. Skýrsla formanns.
  • 3. Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir reikningar
  • 4. Tillögur um breytingar á lögum klúbbsins. Sjá tillögur fyrir neðan.
    • a. Allar tillögur um lagabreytingar verða að hafa borist stjórn amk. 14 dögum fyrir aðalfund
    • b. Þær verða svo kynntar félagsmönnum fyrir aðalfund í tölvupósti.
    •   Ein tillaga barst, sjá hér fyrir neðan.
  • 5. Kosning formanns.
  • 6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
  • 7. Nefndir mannaðar
  • 8. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun
  • 9. Önnur mál.

Ein tillaga að breytingum á lögum klúbbsins barst. Lagt er til að bætt verði við 4. grein „og að vinna að eflingu og framgangi ferðalaga á reiðhjólum hérlendis" þannig að greinin verði: „4.grein: Markmið félagsins er að auka reiðhjólanotkun og vinna að bættri aðstöðu fyrir þá sem hjóla og að vinna að eflingu og framgangi ferðalaga á reiðhjólum hérlendis. ÍFHK stendur meðal annars fyrir útgáfu- og fræðslustarfsemi til að kynna stefnu sína og markmið.“

Núgildandi lög ÍFHK má lesa hér: Lög ÍFHK

Sjáumst á aðalfundinum

Stjórn Íslenska fjallahjólaklúbbsins