Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn 26. október 2017, Brekkustíg 2, kl. 20.

Jafnframt hefur verið auglýst eftir framboðum til stjórnar klúbbsins. Þeir sem hyggja á framboð, sendi tilkynningu í netfangið ifhk@fjallahjolaklubburinn.is

Stjórn félagsins er kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnina skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Einnig skal kjósa endurskoðanda og formenn nefnda.

Ennfremur var auglýst eftir tillögum að lagabreytingum. Þær verða að berast stjórn ÍFHK amk. 14 dögum fyrir aðalfund. 

Dagskrá aðalfundar:

  • 1. Kosning fundarstjóra.
  • 2. Skýrsla formanns.
  • 3. Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir reikningar
  • 4. Tillögur um breytingar á lögum klúbbsins. Sjá tillögur fyrir neðan.
    • a. Allar tillögur um lagabreytingar verða að hafa borist stjórn amk. 14 dögum fyrir aðalfund
    • b. Þær verða svo kynntar félagsmönnum fyrir aðalfund í tölvupósti.
  • 5. Kosning formanns.
  • 6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
  • 7. Nefndir mannaðar
  • 8. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun
  • 9. Önnur mál.

Stjórnin.

Núgildandi lög ÍFHK má lesa hér: Lög ÍFHK

Tillögur að lagabreytingum:

Ein tillaga barst um að uppfæra póstfang klúbbsins í 3. grein laganna:

Að 3. gr. sem nú er:

3.grein: Póstfang er pósthólf 5193, 125 Reykjavík.

verði:

3.grein: Póstfang er Brekkustígur 2, 101 Reykjavík.

Þetta er til samræmis við að pósthólinu hefur verið lokað.

Sjáumst á aðalfundinum
Stjórn Íslenska fjallahjólaklúbbsins