Þriðjudagskvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins halda áfram í sumar eins og hefð er fyrir. Brottför er kl 19:30 frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, aðalinngangi.

Hér fyrir neðan má sjá myndband og myndir úr ferðum síðasta sumars.

Fyrirkomulag ferðanna:

Við hittumst við aðalinnganginn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum  kl.19:30 á hverjum þriðjudegi frá byrjun maí  og hjólum saman, ýmist eftir stígum, hjólabrautum eða samnýtum rólegar hverfisgötur með öðrum farartækjum., lærum að þekkja stígakerfið, kynnumst þeim fjölmörgu hjólabrautum  sem hafa verið lagðir á undanförnum árum og gert hjólreiðafólki auðveldara að fara um höfuðborgarsvæðið með  öruggum hætti.

Skipulagið er með þeim hætti að veður, vindátt, færni og óskir þátttakenda ráða því hvert er hjólað hverju sinni.  Þriðja fimmtudag í mánuði er lengri ferð, þá má búast við að allt kvöldið fari í túrinn; í Hafnarfjörð, upp í Heiðmörk, út í Viðey, kannski kíkt í kaffi á Bessastöðum eða óvænt óvissuferð.  Stundum er farið á kaffihús, við höfum farið í sjósund, endað í ísbúð eða á hamborgarabúllu.  Bara allt eftir  því hvernig stemmingin er hverju sinni.  Þessar ferðir henta öllum, byrjendum, görpum og börnum niður í 10 ára í fylgd foreldra eða forráðamanna.  Þá hafa yngri börn komið með á tengihjólum eða þar til gerðum barnastólum.  Er ekki tími til kominn að dusta rykið af reiðhjólinu sem er búið að standa allt of lengi úti í bílskúr og koma með okkur eitthvert kvöldið?

- Ferðanefnd

 

{oziogallery 555}