Nú líður að hinni árlegu ferð klúbbsins á Nesjavelli. Þetta er fyrsta ferð sumarsins og er oft fyrsta hjólaferðalag þeirra sem taka þátt, því hún hentar sérstaklega vel nýliðum jafnt sem lengra komnum. Frábært tækifæri til að stíga skrefið í góðum hópi og öðlast reynslu í að ferðast á hjóli og læra um leið af öðrum.

Ætlunin er að hittast næstkomandi laugardag við Árbæjarsafni klukkan 13:00 og leggja saman af stað þaðan. Til skrá sig í gistingu þarf að hafa samband við Nesbúð beint og panta gistingu. Hægt að er að velja um vera annaðhvort í svefnpokaplássi eða uppábúnu rúmi og fá þeir sem eru á vegum klúbbsins í ferðinni 15% afslátt af hvoru tveggja gegn því að framvísa skírteininu. Morgunverður er innifalinn í verðin sem er eftirfarandi:

Svefnpokapláss                                - 4.200,-
Uppábúið tveggja manna herbergi     - 10.600,-

Samkvæmt hefðinni er ætlunin að grilla saman þegar á áfangastað er komið og þeir sem hafa áhuga geta svo fylgst með Eurovision um kvöldið. Að sjálfsögðu verður einnig hægt að fara í pottinn fyrir þá sem það vilja. Við hjólum svo saman til baka á sunnudeginum þegar allir eru búnir að kýla út kviðinn. Á fimmtudeginum fyrir ferðina verður  Magnús Bergsson með ferðaundurbúningsnámskeið. Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á hjólreiðum til að mæta þar sem þetta námskeið fer yfirleitt fram í léttu spjallformi.

Ef einhverja spurning vakna vegna ferðarinnar er hægt að hafa samband við Pétur Þór í síma 895 8015.

Að lokum vil ég hvetja alla sem einhvern áhuga hafa á ferðinni að slá til. Það hefur sýnt sig að það þarf lítið annað en reiðhjól í nothæfu ástandi og smá vilja til þess að geta klárað svona ferð. Yfirferðin hjá okkur er róleg og sjálfsögðu er enginn skilinn eftir aftastur. Með í för verður trússbíll þannig að hægt verður að bjarga þeim sem lenda í vandræðum.

Sjáumst hress!
Kveðja, Pétur Þór Ragnarsson