Framundan er helgarferð um ægifagurt landssag.  Lagt af stað laugardaginn 12 maí kl 11:00 frá Olís bensínstöðinni við Norðlingaholt.  Hjólað verður eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg.  Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns. Þar verður gist í góðum bústöðum með heitum potti.  Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki.  Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer. 

Fólk þarf að hafa með sér nesti til tveggja daga og drykkjarföng.  Bæði fyrir daginn, þar eð engir lækir eru á leiðinni og það sem menn vilja kneifa um kvöldið.  Sameiginleg máltíð á laugardagskvöldi (innifalið í verði) og hafragrautur á sunnudagsmorgni.  Taka þarf með rúmföt (lak, sængur og koddaver), tannbursta og sundföt.  Trússbíll tekur farangur og aðrar pjönkur og möguleiki á að fá aðstoð upp Hengilinn ef brekkurnar taka um of í.  Það er sjónvarp í bústöðunum og hægt að fylgjast með Eurovision keppninni sem verður á laugardagskvöldið.

Á sunnudag verður lagt af stað um hádegisbil og sama leið hjóluð til baka.  Það er takmarkað gistirými, svo það þarf að bóka sig fyrirfram í ferðina.  Sendið email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tiltakið fjölda þáttakenda.  Verð er 7000 kr. fyrir fullorðna. Innifalið: gisting, kvöldverður, hafragrautur í morgunmat og trúss á dóti.  Vinsamlega takið fram ef ferðalangur er á vegan fæði.  Fararstjóri er Hrönn Harðardóttir, gsm: 823-9780  Erfiðleikastig 6 af 10.  Áætluð ferðalengd 5-7 klst í austurátt, 4-6 í vestur.

Fólk er á eigin ábyrgð í ferðum Fjallahjólaklúbbsins.

Ferðanefnd.