Viltu skrifa í fréttablað Fjallahjólaklúbbsins, Hjólhestinn? Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins eða prívat og bara allskonar. Við látum samt aðra um að fjalla um keppnissportið.

Það væri t.d. gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki og heyra hvað dreif viðkomandi af stað og hver reynslan hefur verið. Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtilegar hjólaferðir.

Skilafrestur á efni er út febrúar. Þó væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Ef textinn er mjög mikill getum við líka birt góðan kafla í blaðinu og síðan haft söguna alla á vef klúbbsins.

Einnig vantar okkur auglýsingar til að fjármagna blaðið og eru allar ábendingar og aðstoð vel þegin því eins og ávallt er allt starf unnið af sjálfboðaliðum hjá klúbbnum.

Sendið efni á netfang klúbbsins: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.