Venju samkvæmt hefst vinna við fréttabréfið okkar Hjólhestinn í upphafi árs og auglýsum við hér með eftir efni. Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins og allskonar. Við látum samt aðra um að fjalla um keppnissportið. Þetta verður 25. árgangur.

Það væri t.d. gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki og heyra hvað dreif viðkomandi af stað og hver reynslan hefur verið. Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtielgar hjólaferðir.

Skilafrestur á efni er 27. febrúar + ein vika ef á þarf að halda. Þó væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Hver síða rúmar 6-700 orð / 3200-3500 slög en minna með myndum. - Það er skemmtilegra að hafa myndir með. Ef textinn er mjög mikill getum við líka birt góðan kafla í blaðinu og síðan haft söguna alla á vef klúbbsins.

Einnig er laust pláss fyrir auglýsingar, endilega sendið okkur póst ef þið hafið áhuga á að ná beint í þennan lífsglaða markhóp.

Sendið efni á netfang klúbbsins: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.