Kæru félagar, líkt og undanfarin ár hefur Reykjavíkurmaraþon farið þess á leit við okkur að aðstoða við framkvæmd hlaupsins þann 22. ágúst næstkomandi. Áhugasamir klúbbfélagar óskast til að hjóla á undan og eftir hlaupurum í öllum vegalengdum hlaupsins. Allir ættu að geta fundið vegalengd / hraða eftir áhuga og getu hvers og eins.

Fjallahjólaklúbburinn hefur lengi veitt aðstoð sína á þessum skemmtilega degi og þetta er mikilvægur þáttur í fjáröflun klúbbsins. Áhugasamir um þáttöku í þessu verkefni eru hvattir til að setja sig í sambandi við Árna, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., gsm 862 9247. Haft verður samband við viðkomandi í næstu viku með nánari tilhögun. Fundur verður í klúbbhúsinu fimmtudaginn 20. kl. 20 til undirbúnings og farið yfir hlaupaleiðina.

Vegalengdirnar sem eru í boði eru 42 km, 21 km, 10 km og 3 km.

Leiðin er sýnd á korti hér: http://marathon.is/kort/kort.

Dagskrá hlaupsins er hér: http://marathon.is/hlaupidh/dagskra-hlaupdags.

Sjá líka pistil hér: Hjólað með Reykjavíkur­maraþoni