Fimmtudagur 19 janúar 2023
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn fimmtudaginn 19. janúar 2023 kl. 20 í klúbbhúsinu Brekkustíg 2.
Stjórn félagsins skal skipuð 5-7 félagsmönnum, formanni og 4 – 6 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi. Einnig er heimilt að kjósa allt að 8 varamenn. Formaður skal kosinn í sér kosningu til eins árs í senn. Síðan skulu 2 – 3 meðstjórnendur kosnir til stjórnar árlega, til tveggja ára í senn. Stjórn skiptir með sér verkum og skal vera skipað í embætti varaformanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda.
Ennfremur er auglýst eftir tillögum að breytingum á samþykktum félagsins. Þær verða að berast stjórn ÍFHK amk. 14 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra.
2. Skýrsla formanns.
3. Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir reikningar.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum klúbbsins.
a. Allar tillögur um breytingar á samþykktum kúbbsins verða að hafa borist stjórn amk. 14 dögum fyrir aðalfund.
b. Þær verða svo kynntar félagsmönnum fyrir aðalfund í tölvupósti og hér fyrir neðan ef einhverjar berast.
5. Kosning formanns.
6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
7. Nefndir mannaðar.
8. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun.
9. Önnur mál.