Framljós – nýtt frá Cateye
Þá er enn einn veturinn genginn í garð og um leið tími ljósanna.
Úrvalið á íslenska markaðnum hefur lítið breyst frá fyrri árum, hvað þá
frá úrvali síðasta árs. Trek er þó komið með ný díóðuljós og
Hjólhestinum barst í hendur glæný ljós frá Cateye. Örninn er
umboðsaðili beggja framleiðenda.
Þegar þetta er ritað þá var verðið á ljósunum ekki komið né heldur var
hægt að lesa um þau á heimasíðu Cateye. En það er nokkuð spennandi að
vera með þeim fyrstu að skoða ljós sem eiga líklega eftir að vera á
markaðnum næstu 2-4 árin. Hér eru á ferðinni smáspennuljós sem flest
ganga á 2,6 – 3,0 voltum fyrir utan eitt sem gengur á 5,4 - 6,0 voltum.
Þetta eru því ódýrustu ljósin frá Cateye og má gera ráð fyrir því að
verðið sé í öllum tilvikum undir 3500 kr. Cateye er þegar farin að
hefja framleiðslu þessara ljósa úr gagnsæju plasti sem nýtir ljósið mun
betur. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort það verði til þess
að ljósið skíni beint í augu hjólreiðamanns með tilheyrandi truflun.