Fyrir 15 árum kom út 1. tbl. 7 árg. af Hjólhestinum. Að venju var hann sneisafullur af fróðleik fréttum og ferðasögum. Hér sést það í fyrsta skipti í lit enda var það í fyrsta skipti sem blaðið var unnið með litmyndum og hefur verið varðveitt í sinni upprunalegu mynd. Liturinn hvarf um leið og blaðið var prentað enda höfðum við ekki efni á slíku.

Félagsgjaldið var 1500 kr sem væri yfir 3000 kr framreiknað i dag en það er þó aðeins litlar 2000 kr. í dag.

Alda Jóns, þáverandi formaður, skrifaði ferðasöguna um fjölskylduferð um Kjöl.

Við fjölluðum um ýmiskonar sérhönnuð hjól fyrir fatlaða í máli og myndum. enda er útivist fyrir alla.

Magnús Bergs gaf góð ráð við val á hjólum og tengivögnum.

Jón Örn Bergs fjallaði um umferðarofbeldi og margt fleira athyglisvert var í blaðinu.

Forsíðumyndina tók undirritaður á ferð sinni til London og sýnir hún hjólarein. Nánari umfjöllun um aðstöðuna fyrir hjólandi í London er á bls. 18-20. Þar er fyrst kynnt hjólastæði með boggrindum „sem auðvelt er að festa hjólin við með traustum lásum“, þremur árum seinna kynnti Reykjavíkurborg sinn ágæta staðal með svipuðum boggrindum: Hjólastæði fyrir Reykjavíkurborg, fyrirkomulag og útlit

Einnig sýndum við mynd af götu þar sem einstefna var á bíla en ferðast mátti í báðar áttir á reiðhjóli. Ætli það séu ekki tvö ár síðan slíkt sást fyrst í Reykjavík á hluta Suðurgötu norðan Hringbrautar meðfram gamla kirkjugarðinum.

Aðrar hjólareinar líkt og á forsíðunni eru líklega ekki til á Íslandi nema í stubbaformi en eitthvað er farið að bóla á hjólastígum, eins og þeir heita þegar eitthvað skilur þá frá akreinum bifreiða og ekki er um að ræða stíg með blandaðri umferð gangandi og hjólandi.

Sérreinar fyrir strætó og reiðhjól eru reyndar ekki til í lögum enn og hérlendis skilst mér að Strætó leggist alfarið á móti því að deila svokölluðum strætóreinum með hjólandi ólíkt því sem gerist í stórborgum eins og London og París.

Einnig var smá kveðskapur frá Birni Finns og notaði hann þar meðal annars ýmis nýyrði sem spurning er hvort hafi náð að festa sig í sessi, eða hver kannast við þessi ágætu heiti hjólabúnaðar:

Ýmis heiti hjóla og búnaðar, með skýringum:

 stinningur  mýkilaust hjól
 stýrmýkill  stýri á mýkifestingu
 harðrassi  hjól með mýkikvísl
 hálfmýkill  hjól með mýkikvísl eða bakmýkli
 rassmýkill  sætisstöng með mýkli
 mýkikvísl  gaffall með mýkli/mýklum
 almýkill  hjól með bakmýkli og mýkikvísl
 bakmýkill  mýkill á afturhluta hjóls
 mýkill  dempari
   
  Á stinningi stíga flestir
en stýrmýkill léttir hald,
harðrassar haldnir brestir,
hálfmýkill veitir vald.
Bakmýkill - rassmýkli betri
beri hann mýkikvísl.
Almýkill eflist að vetri
við alskonar hjóla sýsl.
Björn Finnsson

 

Meiri kveðskapur er á vef okkar undir Pistlar og Greinar > Kveðskapur

 

Blaðið má skoða hér: Hjólhesturinn 7. árg. 1. tbl. mars 1998 

 Páll Guðjónsson