Svipmyndir úr skemmtilegri ferð sem við fórum 14.-16. júní 2013 um snæfellsnes norðanvert.

{oziogallery 460}

 

Kynning á ferðinni:

Lagt af stað á bílum frá Reykjavík föstudaginn 14 júní kl 19:00, við munum sameinast í bíla.  Keyrt til Stykkishólms, þar sem gist verður á tjaldstæðinu í tvær nætur.  

Á laugardegi er hjóluð leið 6 upp úr Hjólabók Ómars Smára, um Berserkjahraunið og nágrenni Stykkishólms.  Skellt sér í sund á Stykkishólmi eftir hjólatúrinn og snætt á veitingastað í hjarta bæjarins. 


Næsta dag eru föggur teknar saman, keyrt yfir á sunnanvert Snæfellsnesið og gamla Vatnaleiðin hjóluð til norðurs, og svo brunað á malbikinu aftur að ökutækunum.  Ekkert gjald, fólk greiðir sjálft fyrir gistingu og kr 5000 fyrir far fram og til baka ef á þarf að halda.  Fararstjóri er Örlygur Sigurjónsson.  Bókanir sendist Hrönn á email This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..  Erfiðleikastig 4 af 10 fyrri daginn, 6 seinni.