ánægð með nýyfirfarið hjólHér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar hjólið er tekið fram að vori. 

Þrýstingur í dekkjum er mældur í pundum. Það stendur á dekkjum hversu mikill þrýstingur á að vera.  Grennri dekk þola meiri þrýsting. Hjólið rennur betur og það springur síður ef réttur þrýstingur er í dekkjum.

Að pumpa í dekk með frönskum ventli. Nota þarf sérstakar hjólapumpur eða kaupa lítið millistykki í hjólabúðum sem skrúfað er á ventilinn. Þegar pumpað er í þarf að . Skrúfa síðan aftur fast þegar loftið er komið í.

    Franskur ventill    losa um skrúfgang á ventlinum og ýta létt á pinnann    Millistykki sett á

Að pumpa í dekk með bílaventli. Flestar bensínstöðvar eru með mæli við dæluna. Lesið er á dekkið hver ráðlagður þrýstingur er (psi) og pumpið í þann þrýsting. 

 

millistykki
Góð hjólapumpa með þrýstingsmæli

 

Hæð á hnakk miðast við leggjalengd þess sem notar hjólið hverju sinni. Við sætispípuna er  lítið handfang sem losað er til að stilla hæðina. Gott er að miða við að fóturinn sé beinn þegar hæll er á pedala í neðstu stöðu. 

fótur beinn þegar hæll er á pedala í neðstu stöðu
Losað um sætispóstinn

Oftast er losað um sætispóstinn með sveif en stundum þarf að losa sexkannt.

 

Að stilla hnakkinn. Flesta hnakka er auðvelt að stilla. Undir þeim er skrúfa sem losuð er með sexkant. Hnakkurinn er stilltur láréttur.  Sumum finnst gott að láta hnakknefið örlítið niður að framan. Hnakkinn er líka hægt að draga fram eða aftur um nokkara sentimetra. 

 

Keðjan smurð

 

Keðjuna þarf að smyrja reglulega. WD-40 er ágæt til að hreinsa en hún smyr ekki.  Mikilvægt er að smyrja alla keðjuna með keðjuolíu og þurrka umframolíu af svo hún fari ekki í föt.

 

Ánægð með nýyfirfarið hjólið

Ánægð með ný yfirfarið hjól


 

Texti Guðný Einarsdóttir
Myndir Freyr Frankson

Birtist fyrst í Hjólhestinum, fréttabréfi ÍFHK, maí 2010.

Íslenski fjallahjólaklúbburinn,
Brekkustíg 2,
101 Reykjavík. 

 

Netfang: ifhk@fjallahjolaklubburinn.is
Kt. 600691-1399
Banki: 515-26-600691