hest-haus.pngGömlu félagsskírteinin renna út í enda þessa mánaðar og því ekki seinn vænna en að endurnýja. Félagsmenn fá svo á næstunni sendan heim nýjan Hjólhest sem tölti í prentsmiðjuna í dag. Rukkun fyrir félagsgjöldunum ætti að vera komin í heimabankann hjá flestum en ef ekki látið okkur þá vita og látið kennitöluna fylgja. Listi yfir aðila sem veita félagsmönnum afslátt má finna hér . Og þau ykkar sem ekki eruð enn gengin í klúbbinn, nú er tíminn.


Félagsgjaldið eru litlar 2000 krónur, 1000 ef þú er undir 18 og fyrir 3000 má skrá alla fjölskylduna og allir fá sér skírteini. Sjá nánari upplýsingar hér .