Þó við heitum gamalgrónu nafni er klúbburinn fyrir alla sem hjóla. Gangið í klúbbinn, styðjið við bakið á starfi okkar og njótið þeirra veglegu afslátta sem bjóðast víða gegn framvísun félagsskírteinis.
Hrönn Harðardóttir lætur snjóinn og slabbið ekki aftra því að hún hjóli í vinnuna á degi hverjum. Á síðasta ári hjólaði hún 6000 kílómetra yfir árið en það jafngildir tæplega fjórum og hálfri ferð umhverfis landið. En talið er að þeir skipti hundruðum sem nýti sér þennan samgöngumáta að staðaldri.