|
Í tilefni þess
að nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til nýrra umferðarlaga þar sem hjálmanotkun
er leidd í lög fyrir 14 ára og yngri og ráðherra gefin opin heimild til að
útvíkka ákvæðið fyrir fullorðna án samþykkis Alþingis er við hæfi að kynna
stefnu ECF gagnvart slíkri löggjöf.
Efnislega er
þetta líka afstaða Landssamtaka hjólreiðamanna.
Stefna
evrópusamtaka hjólreiðamanna, the European Cyclists’ Federation (ECF) gagnvart
reiðhjólahjálmum og löggjöf um þá.
Hjólreiðamenn
lifa lengra og heilbrigðara lífi; alvarleg höfuðmeiðsl eru sjaldgæf og gögn sem
mæla með hjálmanotkun og lögboðinni hjálmaskyldu orka tvímælis. Helstu áhrif hjálmaskyldu hafa
ekki verið aukið öryggi hjólreiðamanna heldur að fæla fólk frá hjólreiðum, og
grafið undan heilsufarslegum ávinningi hjólreiða og öðrum kostum sem þeim
fylgja. Því skorum við á þingmenn að 1) einbeita sér að gamalreyndum aðferðum
sem hvetja til hjólreiða og velferðar hjólreiðamanna; 2) viðurkenna að kostir
hjólreiða vega margfalt þyngra en áhætta; 3) forðast að hvetja til eða skylda
notkun reiðhjólahjálma án traustra sannana um að slíkt sé gagnlegra og
hagkvæmara en aðrar öryggisráðstafanir.
Allra leiða
ætti að leita til að hvetja til og stuðla að auknum hjólreiðum því þær eru
góðar fyrir umhverfið, heilsu hjólreiðamannsins og almenna lýðheilsu m.a.
Reiðhjólahjálmar gera lítið til að auka öryggi. Besta leiðin til að auka
öryggi hjólreiðamanna er að hvetja til aukinna hjólreiða.
ECF hvetur til
hjólreiða og umferðaröryggis og er því á móti lögum sem skylda hjólreiðamenn
til að nota reiðhjólahjálma af eftirfarandi ástæðum:
Lögbundin
hjálmaskylda fælir frá hjólreiðum með því að gefa í skyn að þær séu sérlega
hættulegar, þrátt fyrir að rannsóknir sýni meiri líkur á að þú látir lífið við
að ganga tiltekna vegalengd en hjóla (Wardlaw 2002).
Það eru minni
líkur á að hjólreiðamenn sem slasast verði fyrir höfuðmeiðslum heldur en
gangandi vegfarendur eða farþegar í bílum sem slasast (ONISR 2005).
Hjálmaáróður
sem byggir á stuðandi eða hryllilegu efni gefur í skyn að reiðhjólahjálmar
veiti margfalt meiri vörn en þeir gera. Reiðhjólahjálmar eru eingöngu hannaðir
til að þola lítilsháttar högg, ekki árekstur við vélknúin ökutæki.
Í þeim löndum
sem fólki er refsað fyrir venjulegar hjólreiðar (án reiðhjólahjálma), hefur
ekki tekist að draga úr tíðni höfuðmeiðsla þrátt fyrir aukna notkun
reiðhjólahjálma.
Rannsóknir sýna
að í löndum þar sem hvatt er til hjólreiða og fjöldi hjólreiðamanna hjólar
reglulega ferða sinna til og frá vinnu kemur „öryggi fjöldans“ til sögunnar.
Það er að segja; eftir því sem fleiri hjóla verða hjólreiðar öruggari.
Þegar dregur úr
hjólreiðum minnka þessi öryggisáhrif um leið. Minni hjólreiðar draga úr
jákvæðum árifum þeirra á lýðheilsu og umhverfi.
Evrópusamband
hjólreiðamanna ráðleggur þingmönum að leggja af reglu um skyldunotkun reiðhjólahjálma
og stuðla að auknum hjólreiðum.
Þýðing og
samantekt Páll Guðjónsson.
Hér má lesa bréf ECF til Alþingis vegna umferðarlaganna sem liggur fyrir þinginu og er til meðferðar í Samgöngunefnd núna. PDF skjal .
Birtist fyrst í
Hjólhestinum mars 2011.
|