|
Höfundur: Ferðanefnd
|
|
miðvikudagur, 04 nóvember 2009 |
|
Nú er ferðanefndin tekin til starfa. Vinna við undirbúning ferða næsta
árs er hafin. Það væri gott að heyra frá félagsmönnum hvernig ferðir og hvert nefndin
ætti að hafa að leiðarljósi við undirbúninginn. Svarið endilega skoðanakönnuninni á forsíðunni.
Nefndin hefur verið að ræða nokkrar útfærslur, sem eru:
-
Dagsferðir:
Dagsferð hjólað 40 -100 km
-
Helgarferðir:
Fara á föstudagssíðdegi úr bænum og komið til baka sunnudagskvöld.
Stuttar eða miðlungs dagleiðir. Líka hægt að fara á tjaldsvæði með fjölskylduna og hjóla í næsta
nágrenni.
-
Sumarleyfisferðir:
Lengdar helgarferðir 3-7 dagar, um áhugaverð svæði með eða án
trússbíls.
-
Jaxlaferðir:
Frekar erfiðar ferðir. Gæti verið dagsferð eða nokkrir dagar. Miðlungs
eða langar dagleiðir.
Hafið endilega samband við undirritaðann varðandi óskir og hugmyndir
Nefndin hefur fengið vilyrði fyrir afnotum af kerru, sem tekur slatta
af hjólum og farangri.
Fyrir hönd ferðanefndar,
Björgvin Hilmarsson
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|