Klúbbhúsið, Brekkustíg 2
Klúbburinn er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst
kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og
tala um heima og geima, eða verða sér út um upplýsingar um
athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða hvað eina tengt
hjólreiðum.
Í
klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um
flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og
umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að
kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá
tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna
að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp
gjarðir eða skipta um olíu í dempara
Dagskráin og ferðalögin
Dagskrá klúbbsins má skoða á dagatalinu þar sem við reynum að setja inn flesta stærri hjólatengda viðburði hjá öðrum líka, s.s. hjólakeppnir og fl.
Veljið Dagskrá í valmyndinni og síðan flokk.
Þriðjudagskvöldferðirnar
Þriðjudagskvöldferðirnar eru vikulegar fjölskylduvænar ferðir um
höfuðborgarsvæðið fram á haust. Markmið ferðanna er að kynna og skoða
hjólaleiðir á höfuðborgarsvæðinu svo reiðhjólið nýtist okkur betur sem
samgöngutæki og afþreying. Þessar ferðir henta öllum, byrjendum, görpum
og börnum niður í 10 ára í fylgd foreldra eða forráðamanna.
Oftast er leiðin valin á staðnum og tekið mið af veðri og vindum þeim sem mæta í hverja ferð.
Brottför er kl 19:30 frá
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, aðalinngangi.
|