|
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson
|
|
föstudagur, 27 mars 2009 |
Kæri félagi ÍFHK.
Nýtt fréttabréf Fjallahjólaklúbbsins var að koma úr prentun
stútfullt af skemmtilegu efni og ferðasögum. Fréttabréfið hefur verið sent í pósti ásamt
skírteini fyrir árið 2009 til félagsmanna sem þegar hafa greitt félagsgjaldið. Tekin var
ákvörðun um að hækka ekki félagsgjaldið þrátt fyrir almennar hækkanir að
undanförnu. Gjaldið er 2000 krónur
fyrir einstakling eða 3000 krónur fyrir fjölskyldu. Því hefur aldrei verið
hagkvæmara að gerast klúbbmeðlimur en einmitt nú. Að auki eru fleiri fyrirtæki en áður sem veita afslætti en eftir næstu mánaðamót þarf að vísa fram skírteini 2009. Viðburðum í klúbbhúsinu hefur fjölgað og þeir fjölbreyttari og fleiri ferðir eru
fyrirhugaðar í sumar en oft áður. Í ár er 20. starfsár klúbbsins og því verða ýmis konar óvæntar uppákomur árinu sem verða auglýstar síðar.
Sértu meðlimur þá finnur þú greiðsluseðil í heimabankanum. Með því
að greiða hann er fyrrgreindur ávinningur þinn og félagsgjaldið fljótt að borga
sig. Þú styrkir gott félagsstarf og málefni hjólreiðamanna.
Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) fá
prósentu af félagsgjöldum en samtökin berjast fyrir bættri aðstöðu
hjólreiðafólks og lagningu hjólreiðastíga á höfuðborgarsvæðinu. Árangur af
starfi þeirra má glöggt sjá víða í borginni og það er ekki síst þeim að þakka að
hjólreiðar eru nú raunverulegur kostur til samgangna. En betur má ef duga skal
og margt sem má bæta. Við óskum því eftir stuðningi þínum og framlagi í þróun og velferð
hjólreiða á Íslandi.
Kveðja stjórn ÍFHK,
Fjölnir
Björgvinsson.
|