Ferðasögur og myndir
Meðfram fjallahlíðum Prenta Rafpóstur
Höfundur: Haukur Eggertsson   
sunnudagur, 06 maí 2012

Haukur Eggertsson Hálendið opnaðist óvenju seint sumarið 2011, og þurfti því að leita sér fanga víðar, skyldi stigið á sveif. Snemma júnímánaðar lögðum við frúin því af stað í fjögurra daga ferð um uppsveitir Mýrasýslu, Hnappadal, Heydali, Skógarströnd og Bröttubrekku. Margar þessara leiða sem við fórum finnast ekki á kortum og verandi ekki fjarri Reykjavík, gæti ýmsum þótt ferðasagan og leiðarlýsingin áhugaverð.

Lesa meira...
 
Myndir úr fyrstu þriðjudagskvöldferðinni 2012 Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
fimmtudagur, 03 maí 2012

Þriðjudagskvöldferð með Fjallahjólaklúbbnum17 mættu í fyrstu þriðjudagskvöldferðina og hljóluðu vestur í bæ í rjómablíðu og gæddu sér á vöfflum með rjóma. Vel heppnuð byrjun á frábæru hjólasumri.

Lesa meira...
 
Á Rás fyrir Grensás – Vestfirski hringurinn Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hávarður Tryggvason   
laugardagur, 31 mars 2012

havardur-tryggvason.jpg Fyrir um ári síðan tók ég þá ákvörðun að hjóla á komandi sumri góðan hring um landið til að fagna 50 ára afmæli mínu og um leið láta eitthvað gott af mér leiða. Fyrsta hugmyndin var að hjóla hringveginn en eftir nokkrar vangaveltur og reynslutúra í kringum Reykjavíkursvæðið varð ég því afhuga vegna mikillar  umferðar og lélegra vegaxla. Þá datt mér í hug að skoða Vestfirðina og las m.a. tvær ferðasögur í Hjólhestinum sem kveiktu í mér og það varð ekki aftur snúið. Í byrjun var planið að tutla þetta einn með allt á hjólinu, en þegar konan mín Þórunn María Jónsdóttir bauðst til að trússa ferðina ásamt börnunum okkar tveimur, þurfti ég ekki að hugsa mig um tvisvar. Þá hafði ég samband við Hollvini Grensás og bauð þeim að fara þessa ferð til styrktar verkefninu Á Rás fyrir Grensás, sem var þáð með þökkum. Ferðina tileinkaði ég frænda mínum og jafnaldra Kristjáni Ketilssyni, sem hefur verið lamaður eftir bílslys frá 17 ára aldri.

Lesa meira...
 
Syngjandi glaður á hjólinu Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
þriðjudagur, 30 ágúst 2011

tm.gif Þessa dagana hjólar Daniel Hutton hringinn í kringum Ísland og safnar um leið fé til góðgerðarmála. Hann er frá Harrogate í Englandi og hefur stundað söng í yfir 27 ár eða frá átta ára aldri. Hann býðst til að syngja fyrir gistingu eða mat svo það ætti að ríkja mikil sönggleði hvert sem hann fer. Áhugasamir geta haft samband við hann og boðið gistingu. Hann er víst búinn með Snæfellsnesið og að nálgast Akureyri.

Lesa meira...
 
Icemen hópur á ferð um Ísland Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
sunnudagur, 21 ágúst 2011

icemenposterA3T.jpg Þeir eru ófáir sem taka sig til og skipuleggja hjólaleiðangra til að safna áheitum fyrir gott málefni. Einn slíkur leiðgangur er á ferð um landið þessa dagana. Það er stundum munur á ferðasögum þeirra sem ferðast sjálfum sér til ánægju og þeirra sem eru að safna áheitum. Það er skondið að lesa stórkallalegar lýsingar þessa hóps þar sem allt virðist á heljar þröm.

Þeir sáu ekki fyrir sér að geta skrúfað frá vatnskrana og fengið drykkjarvatn hér við hringveginn ólíkt því sem tíðkast í heimalandi þeirra. Hvað þá að geta keypt sér mat og virðast þau lifa á frostþurrkuðum matarpökkum sem þeir höfðu meðferðis. Ferðin er farin veturinn 2011 þ.e. núna frá 12. ágúst.

Lesa meira...
 
Landmannalaugar - Hella 2011 fleiri myndir Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
þriðjudagur, 16 ágúst 2011

IMG_7785.JPGHelgina 13. - 14. ágúst var farið í fyrstu Landmannalaugaferðina á vegum ÍFHK í langan tíma. Náttúran er alltaf einstök á svæðinu og ekki skemmdi að hafa góðan meðvind megnið af leiðinni. Dalakofinn hafði stækkað töluvert fá síðustu ferð sem var á síðustu öld svo það fór vel um alla. En þó það sé búið að fjalla um ferðina í tveim öðrum pistlum er alltaf gaman að bera saman sjónarhorn manna og hér eru fleiri myndir úr ferðinni.

Lesa meira...
 
Jómfrúarferð jeppakerru Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
þriðjudagur, 16 ágúst 2011

HjólakerranÞað mátti sjá margan jeppakallinn snúa sig úr hálsliðnum síðastliðna helgi, en þá fór Fjallahjólaklúbburinn með nýju hjólakerruna sína jómfrúarferð upp í Landmannalaugar.

 

 

 

Lesa meira...
 
Landmannalaugar - Hella 2011 Prenta Rafpóstur
Höfundur: Örlygur Steinn   
þriðjudagur, 16 ágúst 2011

P8130020-220.JPGFerð ÍFHK um nýliðna helgi, frá Landmannalaugum á Hellu, með viðkomu í Dalakofanum, norðan Laufafells var fjölmenn og góðmenn. 18 þátttakendur voru í ferðinni sem hófst í Laugum 13. ágúst kl. 14.

Hjólað var um Dómadal í blússandi meðvindi og töluverðu öskufoki á köflum og áð í Landmannahelli. Þaðan lá leiðin upp að Krakatindi og síðan upp í Rauðufossafjöll uns komið var í Dalakofann um kvöldið, eftir rúmlega fimm tíma ferð, nokkuð krefjandi á köflum.

Lesa meira...
 
Reykjavík á röngunni - Þriðjudagsferðir Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
mánudagur, 15 ágúst 2011

HópurinnFjallahjólaklúbburinn hefur verið með ferðir á þriðjudagskvöldum í sumar og svo verður áfram út ágúst.  Lagt er af stað frá Fjölskyldu og Húsdýragarðinum, aðalinngangi kl 19:30.  Hraða er stillt í hóf og ekki er ákveðið fyrir fram hvert skuli farið, heldur ræðst för af formi, óskum og uppástungum þátttakenda.

Lesa meira...
 
Viðeyjarferð 2011 myndir Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
þriðjudagur, 28 júní 2011

ViðeyFjallahjólaklúbburinn fer öll þriðjudagskvöld frá Fjölskyldu og Húsdýragarðinum kl 19:30, og eitt kvöldið var farið út í Viðey og hjólað um eyjuna.

Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Greinar 1 - 10 af 128

Free Joomla Templates By Joomlashack