|
Höfundur: Alda Jónsóttir
|
|
sunnudagur, 30 maí 1999 |
|
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Pétur Magnússon
|
|
föstudagur, 28 maí 1999 |
Klekkjum á Kuldabola
Jæja elskurnar þá fara brátt í hönd þessir uppáhaldsmánuðir okkar hjólreiðamanna des.-mars. Oft er nú svo að Kuldaboli vill vera að narta í okkur á hinum ýmsu stöðum. Ég ætla því að nota hönnunarhornið í þetta skiptið til að sýna ykkur hvernig klekkja má á Kuldabola á eyrum og hnjám.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
sunnudagur, 15 nóvember 1998 |
|
Eins og svo oft áður er vetur konungur í þann veginn að ganga aftur í
garð. Í huga margra er veturinn sá tími sem leggja ber hjólinu. Sú
skoðun er sprottin af fáfræði því í boði er ýmis búnaður á hjólið svo og
fatnaður sem auðvelda “baráttu” við vetur konung. Ef þú lesandi góður
hefur einhverntíma notað skíði, þá skal á það minnst að vetrarhjólreiðar
eru ekki verri kostur til útiveru hvað þá til ferðalaga í dagsins önn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
miðvikudagur, 28 október 1998 |
|
Það var hægur andvari að norðan með þurrviðri og ekki snjókorn á jörðu, þegar ég geystist seint um kvöld eftir stígnum í Fossvogsdalnum. Ég var í góðu skapi. Bílarnir voru víðs fjarri minni leið og í gegnum ljósmengun höfuðborgarinnar hafði ég orðið vitni að stjörnuhrapi úr Elliðaárdalnum.
Skyndilega kvað við mikil hundgá og hróp einhvers manns í myrkrinu. Ég snarhemlaði og losaði bandspotta úr frambremsunni. Í sömu andrá kom til mín svartklædd vera sem sótbölvaði mér í sífellu og spurði “hvort ég ætlaði að drepa hundinn?” Ég stundi við. Þessi svartklædda manneskja og þetta hundspott höfðu í einni svipan komið mér í virkilega fúlt skap. Um leið og ég settist á hjólið minnti ég manninn á að þessi metersmjóa ræma á stígnum tilheyrði hjólreiðafólki. Hann ætti að gæta að því hvar hundurinn ráfaði og ljósið á hjólinu hefði ekki verið þess megnugt að flóðlýsa svartan felubúning þeirra.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson og Helgi Erlendsson
|
|
fimmtudagur, 12 mars 1998 |
|
Sá misskilningur er afar útbreiddur hér á landi að tengivagnar fyrir börn séu hættulegir. Það mjög slæmt því þessir vagnar eru síst hættulegri en bílar. Við búum í samfélagi sem tekur lítið sem ekkert tillit til hjólreiðamanna en öðru máli gegnir þegar bílstjórar mæta furðufarkostum eins og reiðhjóli með skærgulum tengivagni, þá virðast þeir taka meira tillit til hjólreiðafólksins.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
fimmtudagur, 12 mars 1998 |
|
Þó lítið hafi sést til sérhannaðra reiðhjóla fyrir fatlaða hérlendis ennþá, er nú búið að laga nokkrar leiðir í Reykjavíkurborg það mikið að það ætti að vera orðið raunhæft að taka svona hjól í notkun hér.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
laugardagur, 15 nóvember 1997 |
|
Þá er veturinn að skella á og reiðhjólið sem líkamsþjálfunartæki fyrst
að sýna sýnar bestu hliðar. Það er alveg ástæðulaust að koma því fyrir í
geymslu. Það eru aðeins gamlar kreddur að hjólið sé ónothæft þó að sé
hálka, snjór og kuldi. Til eru nagladekk og skjólgóð föt og yfir stóra
skafla er alltaf hægt að teyma hjólið. Helsta vandamál vetrarhjólreiða
eru meira og minna stjórnlausir bílar sem innihalda bílstjóra með
afskaplega takmarkað útsýni. Það ætti því fyrst og fremst að leggja
bílnum þar sem þeir geta valdið ómældum skaða. En hvað um það, það er
ekki skynsemin sem knýr fólkið út í bílana heldur slæmur ávani. Hér á
eftir kemur uppskrift af því hvernig best er að takast á við vetur
konung án þess að þurfa að leggja sig í mikla hættu gagnvart bílaumferð,
sóðaskap sem henni fylgir, kulda, vosbúð og láta hjólið koma sem best
undan vetri.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
föstudagur, 10 október 1997 |
|
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
mánudagur, 12 maí 1997 |
|
Fátt er skemmtilegra en að eiga stefnumót við móður náttúru á reiðhjóli, hljóðlaust og án þess að menga sitt nánasta umhverfi. Því miður eru það allt of fáir sem hafa treyst sér til að nota reiðhjólið til ferðalaga. Getur það stafað af vanþekkingu og vanmáttarkennd gagnvart náttúrunni t.d. vegna mikillar víðáttu og hræðslu við að takast á við hana í allri sinni mynd?
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Magnús Bergsson
|
|
miðvikudagur, 12 febrúar 1997 |
|
Með smá útsjónarsemi og þolinmæði getur þú farið næstum allra þinna ferða á reiðhjóli. Íslensku hjólreiðafólki bjóðast nú nýir valmöguleikar til að fækka óþarfa snatti á einkabílum umtalsvert. Um er að ræða tvenns konar tengivagna fyrir reiðhjól.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Administrator
|
|
þriðjudagur, 01 október 1996 |
|
Þegar skyggja tekur er það því miður allt of algengt að hjólreiðafólk sé ljóslaust. Því var það að eftir að fagmaðurinn Palli gjaldkeri smíðaði sér bráðsnjallan blikkara í framljós sitt, að hugmynd kom fram að gera prófun á helstu hjólaljósum á markaðnum og birta hana í heild sinni hér í Hjólhestinum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
mánudagur, 27 maí 1996 |
|
Nú í skammdeginu sjást allt of margir hjólreiðamenn í umferðinni ljóslausir og illa búnir, eða réttara sagt sjást ekki. Samkvæmt gildandi reglugerð um búnað reiðhjóla eiga öll hjól að vera útbúin með glitmerkjum, hvítum að framan og rauðum að aftan, auk gulra eða hvítra glitmerkja á pedulum og teinum. "Reiðhjól sem notað er í myrkri eða skertu skyggni skal búið ljóskeri að framan sem lýsir hvítu eða gulu ljósi og ljóskeri að aftan sem lýsir rauðu ljósi". "Ljóskerin skulu fest við hjólið" og "lýsa nægilega vel".
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Jón Örn Bergsson
|
|
sunnudagur, 12 maí 1996 |
|
Þegar maður hyggur á ferðalög er margs að gæta, finna þarf til búnaðinn, fóðrið og fötin og raða svo eftir settum reglum á hjólið. Fyrir það fólk sem er að huga að sinni fyrstu ferð á fjallahjóli ( nú eða gamla Möve) eru hér nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Þýtt úr Bicycling
|
|
miðvikudagur, 01 maí 1996 |
|
"Það er fullt af konum sem hjóla af alvöru og þær þurfa góð hjól." sagði Georgena Terry og sló hnefanum í borðið þegar konur fóru að sækja hana heim og kvarta yfir hjólum sem pössuðu illa og meiddu. Hún stóð við orð sín og hóf framleiðslu á hjólum sérsniðnum þörfum kvenna. "Fertug kona með hnakk sem meiðir vill ekki tala um það við 16 ára afgreiðslustrák, og hann vill ekkert heyra um slíkt."
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
fimmtudagur, 01 febrúar 1996 |
|
Það er að ýmsu að huga þegar spáð er í kaup á nýju reiðhjóli en stundum gleymist aðalatriðið, að stellið sé af réttri stærð fyrir þig og að þú sitir í réttri stellingu á því.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Jón Örn Bergsson
|
|
mánudagur, 01 maí 1995 |
|
Það þarf ekki endilega að kaupa nýtt hjól þegar áhuginn vaknar á að stíga á sveif því margir eiga reiðhjól sem hafa staðið inni í geymslu lengi óhreyfð og má vekja af dvala með nokkrum olíudropum því að rifja upp vorverk hjólreiðamannsins.
|
|
Lesa meira...
|
|