Fréttir
Hjólagarðurinn í Skálafelli opnar Prenta Rafpóstur
Höfundur: Sesselja Traustadóttir   
mánudagur, 09 ágúst 2010

Skálafell Það voru hjól upp um allar hlíðar við opnun Hjólagarðsins, Bike Park, í Skálafelli 8. Ágúst 2010. Strákar á öllum aldri; pabbar, afar, skólastrákar og venjulegir íslenskir töffarar – áttu velheppnaðan dag í fjallinu enda rjómablíða og yfir 20 stiga hiti. Íslenski fjallahjólaklúbburinn bauð gestum upp á pulsu og kók, Dj. Simmi breytti íslenskum náttúruhljóðum yfir í nýjar víddir, hjólabúðir sýndu vörur sínar og keppt var á BMX í drulluhoppi.

Lesa meira...
 
Hjólaferð í Veiðivötn og nágrenni Prenta Rafpóstur
Höfundur: Björgvin Hilmarsson   
miðvikudagur, 28 júlí 2010

VeiðivötnFarið veður frá klúbbhúsinu við Brekkustíg, föstudagsmorguninn 6. ágúst kl. 10.00. og ekið að Vatnsfelli og hjólað þaðan í Veiðivötn. Á laugardeginum verður hjólað um Veiðivatnasvæðið og stórkostleg náttúra svæðisins skoðuð. Á sunnudeginum verður hjólað í Jökulheima. Þaðan ekið heim.

Gist verður í skála Ferðafélagsins í Veiðivötnum, eða tjöldum sem það kjósa.
Verðið er 10.000.kr.innifalin er akstur til og frá Veiðivötnum og gisting báðar næturnar. Hámarksfjöldi er 12.manns.

Lesa meira...
 
Opnun hjólreiðavangs – Bike Park í Skálafelli. Prenta Rafpóstur
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson   
þriðjudagur, 27 júlí 2010

Fyrsta skóflustunganÁ sunnudaginn 8. ágúst verður opnað í Skálafelli fyrsta Bike-Park á Íslandi fyrir fjallahjólreiðar.
Lögð verður alls 3 km löng braut með um 350 m fallhæð. Hægt verður að nota stólalyftuna til að komast upp á fjallstopp og hjóla niður. Á neðri hluta svæðisins verða Dirt-Jump og BMX stökkpallar.
Formleg opnun verður þann 8. ágúst með keppni í BMX og Fjallabruni en nánari dagskrá verður auglýst síðar. Til stendur að hafa svæðið opið um helgar fram á haust á meðan veður leyfir.

Lesa meira...
 
Hjólaferð yfir Heljardalsheiði Prenta Rafpóstur
Höfundur: Stefán B. Sverrisson   
þriðjudagur, 13 júlí 2010

Heljardalsheiði Fjallahjólaklúbburinn stendur fyrir ferð yfir Heljardalsheiði þann 18. júlí. Heljardalsheiði var helsta samgönguæð milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar áður fyrr, áður en akvegur var lagður yfir Öxnadalsheiði. Akvegur hefur aldrei verið lagður yfir Heljardalsheiði en vegslóði var gerður yfir heiðina á níunda áratug seinustu aldar, sem er orðinn frekar torfærinn í dag.

Lagt verður af stað frá Melum í Svarfaðardal (sjá staðsetningu á korti) klukkan 8:45 á sunnudeginum og ferðin enduð á Hólum í Hjaltadal. Leiðin er um 40 kílómetra löng en heiðarleiðin sjálf er um 20 kílómetrar en restin er á akvegi. Áætlaður ferðatími er 6-9 klukkustundir. Hæðin liggur hæst í 860 metra hæð og er hún tiltölulega brött og grýtt beggja megin þannig að gera má ráð fyrir að teyma hjólin upp mesta brattann og jafnvel eitthvað niður Skagafjarðarmegin. Ferðin krefst því að þáttakendur séu í góðu formi og séu tilbúnir að takast á við erfiðar aðstæður. Vaða þarf Kolbeinsdalsá þegar um klukkutími er eftir í Hóla í Hjaltadal og getur það verið nokkuð krefjandi. Mismikið rennsli er í ánni en menn hafa verið að vaða hana upp í hné og alveg upp í klof í sumum tilfellum. Einhverjir snjóskaflar verða einnig á leiðinni nálægt toppi heiðarinnar. Ferðin er því ekki síður ævintýraferð en hjólaferð. Mælst er til að hafa farangur í bakpoka frekar en í töskum á hjólinu þannig að auðveldara verði að koma hjólinu yfir torfærur. Þeir sem standa fyrir ferðinni hafa meðferðis helstu verkfæri og varahluti fyrir hjólin.

Lesa meira...
 
Stefnumót við danska hjólaþekkingu Prenta Rafpóstur
Höfundur: Sesselja Traustadóttir   
miðvikudagur, 07 júlí 2010

KlúbbhúsiðWalther Knudsen kemur í klúbbhúsið á fimmtudaginn til þess að ræða og miðla þróun þeirra félagsstarfa í hjólheimum sem hann hefur verið þátttakandi í. Hann var varaformaður European Cyclists Federation 1998 -2000. Húsið opnar kl. 20 og við skulum stefna á að enska sé aðaltungumálið með fyrirspurnarleyfum á íslensku, dönsku og ensku.

 
Meira...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Greinar 91 - 135 af 300

Free Joomla Templates By Joomlashack