Fréttir
Slides-myndakvöld í Klúbbhúsinu Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
fimmtudagur, 17 maí 2012

Jón Örn BergssonJón Örn Bergsson hefur ferðast víða um land allt frá árdögum Fjallahjólaklúbbsins. Hann sýndi okkur slides myndir og sagði frá ferðalögum sínum kvöldstund eina 17. maí. Forvitnilegt að sjá hvernig fólk og búnaður hefur tekið breytingum á síðustu 15-20 árum. 

 
Bíókvöld 10. maí kl 20:00 Prenta Rafpóstur
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson   
fimmtudagur, 10 maí 2012

Bíókvöld verður haldið fimmtudaginn 10 maí. Sýnd verður myndin Life Cycles sem er konfektmoli fyrir augu og eyru.

Við ætlum að poppa og hafa alvöru stemningu.

Viðgerðarastaðan verður opin sem áður og nú fjölmennum við.

 
Heimsókn frá Hjólað í vinnuna 2012 Prenta Rafpóstur
Höfundur: Húsnefnd   
mánudagur, 30 apríl 2012

Næsta fimmtudagskvöld ætlar hún Jóna Hildur, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, að kíkja til okkar í heimsókn, halda smá kynningu á Hjólað í vinnuna og spjalla við gesti.
Í kaffihorninu verða í boði espresso, macchiato, capuccino og latte.

 
Þriðjudagskvöldferðir Fjallahjólaklúbbsin hefjast aftur Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
mánudagur, 30 apríl 2012

Þá hefjast aftur þriðjudagskvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins.  Brottför þriðjudaginn 1. maí kl 19:30 frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, aðalinngangi.  Hjólað er í rólegheitum í gegn um Fossvogsdalinn, vestur í bæ og endað í vöfflukaffi í Klúbbhúsinu okkar á Brekkustíg 2.  Allir velkomnir.

 
Sagt frá sjö ferðum yfir Arnarvatnsheiði Prenta Rafpóstur
Höfundur: Húsnefnd   
þriðjudagur, 24 apríl 2012

Á fimmtudagskvöldið kemur Haukur Eggertsson í heimsókn og segir frá sjö ferðum yfir Arnarvatnsheiði og drögum að þeirri áttundu. Haukur er þaulvanur hjólaferðum á hálendinu og um að gera að njóta mynda, frásagnar og tækifæris til spurninga. Haukur á einnig afmæli þennan dag svo honum hefur verið lofað afmælisköku og góðu kaffi. Allir hvattir til að mæta og syngja afmælissönginn.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Greinar 1 - 45 af 300

Free Joomla Templates By Joomlashack