Pistlar
Reglnarugl á göngustígum Prenta Rafpóstur
Höfundur: Magnús Bergsson   
mánudagur, 19 maí 2008

Ekki þarf oft að fara um göngustíga Reykjavikur, eða annarra sveitarfélaga, til að komast að því að þar ríkja fremur tilviljanakenndar umferðarreglur. Erfitt er að framfylgja hefðbundnum umferðarreglum. Þar eru margs konar vegfarendur sem fara um á mjög mismunandi hraða:  Hundar, lausir og í bandi, göngufólk, hlauparar, skokkarar, börn, eldri borgarar, fólk með barnavagna, á línuskautum og á reiðhjólum. 

Lesa meira...
 
Að kom sér af stað Prenta Rafpóstur
Höfundur: Eyrún Guðjónsdóttir   
þriðjudagur, 29 apríl 2008

Eyrún og Fjölnir kynna vetrarhjólreiðar við PerlunaÞað var í fyrra vor sem hann Fjölnir vinur minn fór að hvetja mig í því að hjóla í vinnuna. Ég hélt hann væri galinn. Jú jú,ég átti fínt ca 10 ára gamalt, ónotað hjól í geymslunni, en að hjóla og það alla leiðina í vinnuna, það var óhugsandi.

Lesa meira...
 
Samgönguhjólreiðar Prenta Rafpóstur
Höfundur: John Franklin (Páll Guðjónsson þýddi)   
sunnudagur, 06 apríl 2008

Samgönguhjólreiðar – kynning John Franklin

Ráðhús Reykjavíkur. 22. september 2007

Inngangur

Tilgangur þessarar kynningar er að gefa gagnlegar ráðleggingar um hvernig best sé að nota reiðhjól sem samgöngutæki (e: vehicular cycling).

Lesa meira...
 
Brýnustu aðgerðir í málefnum hjólreiðamanna Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
laugardagur, 29 mars 2008

Ath. Þessi samantekt á kröfum og stefnumálum Landssamtaka hjólreiðamanna var uppfærð og útvíkkuð á Ársþingi LHM í febrúar 2010. Lesið stefnumálin hér .


Þann 17. janúar 2008 stóðu Íslenski fjallahjólaklúbburinn og Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) fyrir opnu málþingi með öllum stærstu samtökum hjólreiðamanna og þar var samþykktur fullur stuðningur við þær kröfur sem LHM hafði sent Alþingi um að hjólreiðafólki verði ekki bannað að nota forgangsakreinar eins og frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir.

Lesa meira...
 
Um Fjallabaksleið í Fjallahjólaklúbbinn Prenta Rafpóstur
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson   
föstudagur, 28 mars 2008

Fjölnir á NesjavöllumFerðalög eru og hafa verið mín helsta ástríða allt frá því ég man eftir mér. Tjaldútilegur og jeppaferðir með styttri eða lengri gönguferðum yfir sumartímann hefur átt stóran þátt í að móta mig á barns og unglings árunum. Ég ferðaðist með ömmu og afa, mömmu og pabba, og frændsystkinum úr stórfjölskyldunni og naut hverrar stundar. Það er því nokkuð skrítið finnst mér hvað ég uppgötvaði hjólið seint. Ég hef samt átt hjól síðan ég man eftir mér. Ég hjólaði allra minna ferða á Akranesi þar sem ég ólst upp, en einhvern vegin datt mér aldrei í hug að ferðast á því.

Það var ekki fyrr en ég uppgötvaði Fjallahjólaklúbbinn að kviknaði á perunni. Ég hafði reyndar séð útlendinga hjóla um landið, en ég vorkenndi þeim af því ég hélt þeir væru svo fátækir að þeir hefðu ekki efni á bílaleigubíl eins og allir hinir. Seinna komst ég að því að mörg hver þessara alvöru hjóla með búnaði kosta á við bíl. Ástæðan fyrir því að hjóla frekar en að aka bíl eða mótorhjóli er tengingin við náttúruna og umhverfið sem maður fær með því að fara hægar yfir. Takmark ferðalaga er jú upplifunin sem maður lifir á leiðinni og/eða staðnum sem maður fer á en ekki fjölda kílómetra sem maður fór yfir ekki satt?

Lesa meira...
 
Meira...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Greinar 56 - 110 af 153

Free Joomla Templates By Joomlashack