Pistlar
Cycle Chic á Hjólreiðar.is Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
fimmtudagur, 17 maí 2012

Cycle chic í Reykjavík - hjolreidar.is Meðal helstu markmiða bæði Fjallahjólaklúbbsins og LHM er að auka reiðhjólanotkun og standa fyrir útgáfu- og fræðslustarfsemi og hefur það verið gert með stæl. Tvö síðustu ár gáfum við út hjólreiðabæklinga í samtals 24.000 eintökum sem dreift var samhliða Hjólað í vinnuna keppninni og verður restinni dreift á þessu ári. Þar var áherslan á að ná til þeirra sem voru að prófa í fyrsta skipti að hjóla reglulega til vinnu, auka öryggi þeirra með fræðslu um tækni samgönguhjólreiða og kveða niður sumar af þeim mýtum sem tengdar eru hjólreiðum og fæla suma frá þeim, einnig var fjallað um ótal kosti hjólreiða.

Lesa meira...
 
Hjólað með lítil börn Prenta Rafpóstur
Höfundur: Ursula Zuehlke og Jens Kristinn Gíslason   
laugardagur, 31 mars 2012

Ursula Zuehlke Hjólið er eins manns/einnar konu faratæki – eða hvað? Þó hjólakona uppgvötvi að hún eigi von á barni, er engin ástæða til að hætta að hjóla. Margar skoðanir eru á því hversu lengi óléttar konur megi hjóla, en einnig að það sé í fínu lagi að hjóla alla meðgönguna. Algengt ráð er að konur breyti lífsmynstri ekki mikið að óþörfu á meðgöngu, þ.e. vanar hjólakonur ættu að halda áfram að hjóla, en óvanar ættu að bíða fram yfir fæðingu með að byrja. Það fer ekki bara eftir viðhorfi, heldur einnig eftir gerð og stillingum hjólsins; ágætt er að hækka stýrið og á síðustum vikum meðgöngu gæti verið þægilegt að hjólið sé með dömusniði svo að líkamsstaðan sé upprétt og maginn komist vel fyrir. Besti mælikvarðinn er hvernig tilvonandi mömmu líður á hjólinu sínu. Ávinningurinn af hollri hreyfingu er mikill, bæði fyrir móður og barn, og hættan á að detta er einnig til staðar á leiðinni út á bílastæði.

Lesa meira...
 
Hjólabakterían Prenta Rafpóstur
Höfundur: Ómar Smári Kristinsson   
miðvikudagur, 14 mars 2012

Ómar Smári Kristinsson Hvað eiga veikindi og áhugamál sameiginlegt? Bakteríur. Hér er saga af hjólabakteríu. Hún helltist yfir undirritaðan þegar hann var orðinn rúmlega fertugur. Allflestir kannast við að fá kvef af og til um ævina. Svo kemur skaðræðis lungnabólga einhvern tímann. Þannig er minni hjólabakteríu háttað. Auðvitað andskotaðist ég þvers og kruss um sveitina, sem krakki, loksins þegar mér tókst að læra að hjóla. Seinna meir, sem námsmaður í flatri þýskri borg með reiðhjólamenningu, gaus upp áhugi á reiðhjólinu og kostum þess. Hann varð eftir í Þýskalandi. Nú loksins er „lungnabólgan“ komin.

Lesa meira...
 
Bókaumfjöllun – Hjólabókin Prenta Rafpóstur
Höfundur: Hrönn Harðardóttir   
miðvikudagur, 14 mars 2012

hjólabókin Þessi bók er eins og skrifuð með mig í huga.  Ég ferðast iðulega þannig að ég finn mér 20-80 km hringleið, kem mér á áfangastað á bíl með hjólið aftan á, og hjóla svo í hring, aftur að bílnum eða í náttstað, tek jafnvel annan hring ef stutt er liðið á daginn.

Lesa meira...
 
Er stefna stjórnvalda markleysa? Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
miðvikudagur, 14 mars 2012

Páll Guðjónsson Hjólreiðar eru eitt árangursríkasta og hagkvæmasta tæki sem völ er á til að bæta lýðheilsu, draga úr offitu, hjartasjúkdómum, streitu, þunglyndi og mengun. Því ætti að efla og hlúa að hjólreiðum. En getur verið að stjórnvöld séu að kæfa þær með óþarfa boðum og bönnum og fjársvelti til málaflokksins?

Lesa meira...
 
Meira...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Greinar 1 - 55 af 153

Free Joomla Templates By Joomlashack