|
Íslenskar fréttaveitur |
|
Hjólabloggið
|
?Hjólreiðamenn eru tákn um heilbrigðan lífsstíl borgarbúa?
|
-
Gefum hjólunum SVONA mikið pláss
Nú er átakið Hjólað í vinnuna byrjað og líklegt að umferð hjólandi fólks á götum borgarinnar sem annarsstaðar aukist verulega á næstunni. Það er afar mikilvægt að bílstjórar gefi hjólandi umferð sérstaka athygli og sýni henni tillitssemi. Höfum í huga … Continue reading →
-
VÍS vísar í mýtur
Það er vart boðlegt að tryggingafélag sem vill láta taka sig alvarlega láti frá sér fréttatilkynningar þar dregnar eru upp áratugagamlar mýtur sem standast ekki skoðun. Það var gert í grein í Fréttablaðinu 1. maí og aftur í fréttatilkynningu í … Continue reading →
-
Hjálmaskylda veldur ótímabærum dauðsföllum
Ný grein eftir Colin F Clarke sem birtist í The New Zealand Medical Journal er áfellisdómur yfir lögum sem banna hjólreiðar án reiðhjólahjálma í Nýja Sjálandi. Í samantektinni kemur fram að í kjölfar lagasetningarinnar hafi: Notkun reiðhjóla dregist saman um … Continue reading →
-
Hjólabannið á Laugavegi rifjað upp
Enn og aftur hlustaði ég á grátkór einkabílismans fá stórt pláss í fréttatímum í dag yfir meintu bílahatri sem hrekti viðskiptavini af Laugavegi. Þar var því haldið fram að Laugavegurinn væri ein helsta verslunargata landsins með viðskiptavinum sem vildu geta … Continue reading →
-
Laugavegsvæðum Kringluna
Einu sinni var Laugavegur aðal verslunargata borgarinnar. Fyrir hver jól kom svo mikið fólk þangað að versla á Þorláksmessu að verslanir fengu að hafa opið fram eftir kvöldi og mannfjöldinn slíkur að ekki var pláss fyrir bíla og þeim því … Continue reading →
-
Göngugata eða bílagata?
Stundum segir mynd meira en þúsund orð svo ég setti saman smá myndband sem sýnir stemninguna á Laugavegi síðasta laugardag. Fólk var að versla, sumir í matinn og aðrir fyrir jólin. Það er þó mikill munur á stemningunni í umferðarteppunni … Continue reading →
-
Hraðinn drepur ? en er það ásættanlegur fórnarkostnaður?
Það er mikið öryggisatriði að hægja á umferðarhraða því eins og sést á grafinu stóraukast líkur á dauðsföllum þeirra sem verða fyrir bifreið þegar hraðinn fer yfir 30 km/klst. Síðasta sunnudag var fórnarlömbum umferðarslysa minnst með einnar mínútu þögn í … Continue reading →
-
Nagladekkin undir og ljósin kveikt
Það er kominn sá tími ársins sem búast má við hálku og þá er nauðsynlegt að hafa nagladekk undir hjólinu. Nagladekkin hafa mikið meiri virkni undir reiðhjóli en bifreið og þurfa flestir að prófa þau til að trúa muninum. Og … Continue reading →
-
Er stefna stjórnvalda um auknar hjólreiðar markleysa?
Verði óbreytt frumvarp að nýjum umferðarlögum að lögum er ráðherra heimilt að banna hjólreiðar án hjálms. Það vinnur gegn markmiðum stjórnvalda í loftlagsmálum, lýðheilsumálum, umhverfismálum og markmiðum sveitarfélaga um mannvænlegt umhverfi í borgum og bæjum. Umhverfi þar sem hægt er … Continue reading →
-
Er fólk velkomið í Hörpu á hjólum?
Ég hjólaði í Hörpu um daginn. Þessu mikla mannvirki er ætlað að vera eitt helsta kennileiti Reykjavíkurborgar og sést hér hvernig það gnæfir yfir miðbænum. Það kostaði um 30 milljarða króna, sem koma að mestu leiti frá ríki og Reykjavíkurborg. … Continue reading →
|
|