Ferðalög
Skoðið þennan dag
Næsta mánuðinn
Fyrri mánuður Fyrri dagur
Næsti dagur Næsti mánuður

Haustlitaferð Prenta

15. - 16. sept.: Haustlitaferð. 
Árviss ferð að hausti. Hist verður við Árbæjarsafn 15. september kl. 11 og hjóluð Nesjavallaleið yfir Hengilinn, áleiðis að Álftavatni við Selvík. Náttúrufegurðin er einstök við bæjardyr höfuðborgarsvæðisins og fallegt að sjá haustlitina með þessum vistvæna ferðamáta. Gist verður í góðum bústað með uppábúnum rúmum, grillað og farið í pottinn. Hjóluð sama leið til baka.

Áætlaður ferðatími: 6-7 klst. fyrri daginn og 5-6 klst. síðari daginn.

Erfiðleikaflokkun: 6 af 10.

Fararstjóri í ferðinni er Hrönn Harðardóttir.  Upplýsingar og bókanir: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 823-9780

Aftur


Free Joomla Templates By Joomlashack