Ferðalög
Skoðið þennan dag
Næsta mánuðinn
Fyrri mánuður Fyrri dagur
Næsti dagur Næsti mánuður

Landmannalaugar-Hella Prenta

25.-25. ágúst: Landmannalaugar-Hella

Þessi ferð er kjölfestan í ferðabrölti Fjallahjólaklúbbsins og alltaf er feykigóð mæting.

Ferðatilhögun:
Laugardagur 25. ágúst kl. 8.00: Þátttakendur mæta á Brekkustíg 2  til að setja hjól sín og farangur í trússið. Síðan er haldið af stað áleiðis upp í Landmannalaugar. Þaðan verður hjólað í Dalakofann: vegalengd um 40 km. á malarvegi.

Sunnudagur 26. ágúst kl. 10:30. Hjólað frá Dalakofanum um Rangárbotna á Hellu, mestmegnis undan halla og þar af leiðandi þægilegt og stoppað reglulega á leiðinni til að njóta náttúrufegurðar og félagsskapar hvers annars. Loks verður komið á Hellu, þar sem þreytt og ánægt fólk skellir sér í sund og fær sér ís. Hjólin verða sett á bíl og ekið til Reykjavíkur.

Vegalengd: 65 km.

Erfiðleikaflokkun: 7 af 10.

Skráningar og upplýsingar hjá fararstjóra, Örlygi Sigurjónssyni í Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Aftur


Free Joomla Templates By Joomlashack