Ferðalög
Skoðið þennan dag
Næsta mánuðinn
Fyrri mánuður Fyrri dagur
Næsti dagur Næsti mánuður

Vestfjarðaferð Prenta

21.-22. júlí: Vestfjarðaferð

Hjólaðar verða tvær leiðir úr bókinni Hjólaleiðir – Vestfirðir eftir Ómar Smára Kristinsson. Lagt af stað frá Reykjanesi við Ísafjarðardjúp laugardaginn 21. júlí kl. 11:00 Hjólað réttsælis hringinn í kringum  Reykjanesið, farið yfir Eyrarfjall, sæmilega góður vegur en gæti þurft að teyma hjólin 5 km spotta  upp á fjall. Þessum fjallvegi er ekki haldið við lengur, svo það má búast við að hann máist út í tímans rás. Hinir 50 km. eru á jafnsléttu eða niður í móti og við allra hæfi. Að loknum hjólatúr má láta sig líða ofan í stærsta heita pott landsins, sundlaugina í Reykjanesi.
Áætlaður ferðatími: 6-7 klst.  Erfiðleikaflokkun: 6 af 10.

Á sunnudeginum eru föggur teknar saman þegar nær dregur hádegi, ekið suður að Gilsfirði og hann hjólaður í rólegheitum, 30 km. Fínt að hjóla 3-4 klst. í góðum félagsskap og fá sér svo hamborgara í Hreðavatnsskála eftir túrinn. Erfiðleikaflokkun: 3 af 10.

Gist er í tjöldum eða innigistingu og þátttakendur sjá sjálfir um gistingu og mat.
Sameinast verður í bíla og möguleiki er á að taka kerru með undir hjólin.
Áætlaður ferðakostnaður báðar leiðir er 4000 kr. á mann (miðað við brottför frá
Reykjavík). Þetta er viðmið út frá verðskrá á farþegavefurinn.is

Fararstjóri í ferðinni er Hrönn Harðardóttir. Upplýsingar og bókanir:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 823-9780

Aftur


Free Joomla Templates By Joomlashack