Ferðalög
Skoðið þennan dag
Næsta mánuðinn
Fyrri mánuður Fyrri dagur
Næsti dagur Næsti mánuður

Snæfellsnes Prenta

23.-24. júní: Snæfellsnes

Fjallahjólaferð fyrir fólk sem vill upplifa einstaka náttúru og finna hjólakröftum sínum verðuga viðspyrnu. Brattar brekkur og grófir vegir og óviðjafnanleg fjallasýn einkenna þessa ferð. Samanlögð vegalengd: 100 km.

Ferðatilhögun:

Þátttakendur flytja hjólin á eigin vegum upp á Snæfellsnes og hittast við Arnarstapa laugardaginn 23. júní kl. 11.00. Lagt er á Hálsleið, utan í Snæfellsjökli og hjólað upp í 700 metra hæð. Þaðan tekur við magnað niðurbrun norður og niður á Ólafsvíkurveg. Síðan liggur leiðin austur á Fróðárheiði og er frábær skemmtun að bruna niður á Snæfellsnesveg uns tekin er stefna vestur á Arnarstapa í gistingu (tjöld eða innigisting). Mæla má með kvöldmat í Fjöruhúsinu að Hellnum. Vegalengd: 55 km. Áætlaður ferðatími: 6-7 klst.

Sunnudaginn 24. júní tökum við saman föggur okkar og ökum með hjólin að Vegamótum, og hjólum gömlu Vatnaleiðina, yfir Snæfellsnesið í frábæru umhverfi. Því næst er hjólað í gegnum hið margfræga Berserkjahraun áður en haldið er til baka um nýju Vatnaleiðina.  Enginn verður svikinn af því að bruna niður af henni suður að Hjarðarfelli, í bílana. Heildarvegalengd: 45 km. Áætlaður ferðatími: 5-6 klst.

Æskilegt er að fólk sé á fjallahjóli í góðu ásigkomulagi og hafi meðferðis aukaslöngu, bætur, létt viðgerðasett og sjúkrapakka. Hjálmur og viðeigandi skjólfatnaður er nauðsynlegur. Erfiðleikaflokkun: 8 af 10.

Fararstjóri:  Örlygur Sigurjónsson. Bókanir í netfangið Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Aftur


Free Joomla Templates By Joomlashack