Klúbbhúsið
Skoðið þennan dag
Næsta mánuðinn
Fyrri mánuður Fyrri dagur
Næsti dagur Næsti mánuður

Myndakvöld Prenta

 

Myndakvöld í Klúbbhúsinu, Brekkustíg 2, fimmtudaginn 17. maí kl 20:00. Jón Örn Bergsson hefur ferðast víða um land í árdaga Fjallahjólaklúbbsins. Hann ætlar að sýna okkur slides myndir og segja frá ferðalögum sínum þessa kvöldstund. Forvitnilegt að sjá hvernig (og hvort) fólk og búnaður hefur tekið breytingum á síðustu 15-20 árum. 


dscf1317ww.jpgKlúbburinn er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.

namskeid.jpgÍ klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp gjarðir eða skipta um olíu í dempara

 

 

Aftur


Free Joomla Templates By Joomlashack