| Myndakvöld |
|
|
|
|
Myndakvöld
Á fimmtudagskvöldið 26. apríl kemur Haukur Eggertsson í heimsókn og segir frá sjö
ferðum yfir Arnarvatnsheiði og drögum að þeirri áttundu.
Haukur er þaulvanur hjólaferðum á hálendinu og um að gera að njóta
mynda, frásagnar og tækifæris til spurninga.
Haukur á einnig afmæli þennan dag svo honum hefur verið lofað
afmælisköku og góðu kaffi.
Allir hvattir til að mæta og syngja afmælissönginn
Klúbburinn
er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að
kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima
og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir,
tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.
Í
klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um
flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og
umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að
kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá
tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna
að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp
gjarðir eða skipta um olíu í dempara
|