Út í óvissuna?
Á fimmtudagskvöld mætir Rúnar nokkur Theodórsson, öðru nafni Hjólameistarinn.
Hann ætlar að segja okkur aðeins frá keppninni Trans-Provence sem hann mun keppa í, í september í haust.
Það er vikulöng fjallahjólakeppni með alvöru leiðum,
http://www.trans-provence.com .
Við ætlum einnig að hafa kompukvöld þetta kvöld.
Rúnar hefur lofað að mæta með eitthvað af dóti og viljum við hvetja alla sem geta að mæta með eitthvað með sér.
Kaffimeistarinn verður á staðnum.
Klúbburinn
er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að
kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima
og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir,
tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.
Í
klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um
flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og
umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að
kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá
tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna
að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp
gjarðir eða skipta um olíu í dempara
|