| Samgöngumál hjá Reykjavíkurborg: Karl Sigurðsson mætir |
|
|
|
|
Fimmtudaginn 26. jan verður opið hús þar sem góðir gestir frá Reykjavíkurborg mæta og hafa framsögu um hjólreiðar í borginni. Þetta eru Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs, og varaformaður ráðsins, Kristín Soffía Jónsdóttir. Þau ræða stefnu borgarinnar í hjólreiðamálum og hvernig þau sjá fyrir sér framtíðarskipulag samgöngumála þar sem saman fara ólíkir samgöngumátar. Og sitthvað um snjómoksturinn góða. Við vonumst til að sjá sem flesta og nú er tækifærið til að spyrja fulltrúana út í málin.
Klúbburinn
er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að
kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima
og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir,
tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.
Í
klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um
flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og
umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að
kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá
tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna
að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp
gjarðir eða skipta um olíu í dempara
|