Miðvikudagur, 22. júní
Nú var komið að hjólaferð ársins erlendis, Svíþjóð og Danmörk, ekki það að ég sé að fara utan að hjóla á hverju ári. Ég gat „platað“ einn félaga minn til að skutla mér upp á flugvöllinn, við fórum að heiman um hálf átta og rúmlega ellefu í loftið. Það var góður meðvindur því rúmlega þriggja tíma flugið tók aðeins um tvær og hálfa klst. Guðrún og Guðbjartur tóku á móti mér á vellinum í Köben og strax var farið í að setja hjólið saman og gera það klárt fyrir lestarferðina til Gautaborgar. Þar sem flugið tók skemmri tíma en áætlað var náðum við hálf sex lestinni til Gautaborgar, í stað þeirrar sem við vorum búin að áætla kl. hálf sjö. Það var reyndar um tuttugu mínútna seinkun á henni, þannig að hún kom ekki fyrr en um tíu mínútur í sex. Eftir nokkuð þægilega lestarferð komum við til Gautaborgar um hálf tíu. Þaðan hjóluðum tæplega við fjögurra km hjólaferð til vandræðaheimilisins, STF Göteborg / Stigbergslidens Vandrarhem, þar sem við ætluðum að gista. Ég sagði vandræðaheimili, en það er bara vegna þess að farfuglaheimili á sænsku er Vandrahem og nánast það sama á dönsku, þannig að við töluðum um vandræðaheimili í ferðinni.