Vinna við fréttabréfið okkar Hjólhestinn er komin á fullt og auglýsum við nú eftir efni. Það er laust pláss fyrir ferðasögur, reynslusögur og ýmisskonar pistla.

Það væri t.d. gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki og heyra hvað dreif viðkomandi af stað og hver reynslan hefur verið. Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtielgar hjólaferðir.


Í ár verður klúbburinn 25 ára og væri því sérlega gaman ef einhver vill rifja upp gamla tíma í pistli.

Skilafrestur á efni er út mánuðinn. Þó væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Hver síða rúmar 6-700 orð / 3200-3500 slög en minna með myndum. - Það er skemmtilegra að hafa myndir með og reynum við að hafa amk. eina flotta opnumynd ef að líkum lætur. Eldri Hjólhesta má lesa hér: Hjólhesturinn fréttablað ÍFHK

Einnig vantar okkur aðstoð við að afla auglýsinga til að fjármagna blaðið og eru allar ábendingar vel þegnar. Auglýsingastjóri í þetta skiptið er Geir Harðarsson / This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sendið efni á netfang klúbbsins: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.