Við ætlum að gera okkur glaðan dag fimmtudaginn 7 desember kl 20:00, drekka heitt súkkulaði, gæða okkur á kökum og kruðeríi.

Komdu fagnandi í Klúbbhúsið okkar Brekkustíg 2 og gleðstu með okkur á þessum síðustu metrum ársins 2023.

Framundan er helgarferð um stórbrotið landslag.
Planið er að sameinast í bíla, hittast við Hjálparfoss um kl 11 laugardaginn 18 júlí, hjóla um línuveg að Sandártungu og hjóla um skógi vaxnar hlíðar aftur að bílunum. Línuvegurinn er grófur yfirferðar en skógarstígarnir auðveldir.

Kæru félagar. Nú líður að endurnýjun árgjalds en 2019 skírteinin gilda út mars. Við munum stofna kröfur 24 febrúar, en ef einhver hefur tök á að leggja beint inn á okkur fyrir þann tíma væri það frábært. Sparar okkur stofn- og greiðslugjöld krafna. Reikningur 0515-26-600691 og kennitala 600691-1399. 2500 fyrir einstakling, 3500 fyrir fjölskyldu.

Úr ferð Fjallahjólaklúbbsins um Vestfirði

28-29 júlí munum við hjóla á Vestfjörðum. Nánar tiltekið Mjóifjörður og Gilsfjörður. Við munum hittast í Heydal (í botni Mjóafjarðar) að morgni laugardags, og stefnan er að leggja af stað um kl 11:00

Ferðin hefst við Svartagil kl. 14:00, og þaðan hjólað norður á Uxahryggi og að Ormavöllum. Þar hefst fjallahjólapuð af bestu gerð, áð við Hvalvatn og hjólað síðan norðan við vatnið (töluvert puð hér) vestur að Glym og hjólin teymd niður brattasta partinn og hjólað að Stóra-Botni og þaðan upp á Leggjarbrjót og þaðan í Svartagil. ATH: breyttan tíma frá fyrstu auglýsingu.

Framundan er helgarferð um ægifagurt landssag.  Lagt af stað laugardaginn 12 maí kl 11:00 frá Olís bensínstöðinni við Norðlingaholt.  Hjólað verður eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg.  Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns. Þar verður gist í góðum bústöðum með heitum potti.  Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki.  Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer. 

Við ætlum að fagna því að sumarið er loksins að koma. Það verður grill og gaman í klúbbhúsinu fimmtudaginn 19 apríl (sumardaginn fyrsta) kl 19, en við ætlum að vinna okkur inn fyrir pulsunum, við hjólum saman frá Fjölskyldu og húsdýragarðinum kl 18:00

Pylsur og gos í boði Fjallahjólaklúbbsins. Á meðan birgðir og húsrúm leyfir.

Kompukvöld verður haldið fimmtudaginn 5. apríl í húsnæði klúbbsins á Brekkustígnum. 

Kompukvöldin eru fastur liðir í starfsemi félagsins þar sem hjólafólk getur selt eða keypt ýmsan varning .. hjól, föt, dekk, gírskipta, stýri, dempara og margt annað. 

Tilvalið að selja gamla hjólið eða kanna hvort draumahjólið verður í boði á viðráðanlegu verði. 

Að sjálfsögðu má prútta ! Kaffi á könnunni og viðgerðaraðstaðan opin að venju.

 

Er gott að koma í blautum utanyfirfötum, í smá hitakófi og vera klár í vinnuna eftir augnablik? Er gott að koma á hjóli til ykkar og sinna erindum sem viðskiptavinur? Hjólastæðin í skjóli við innganginn og gott að læsa stellinu við stæðin?

Er boðið upp á samning um samgöngustyrk? Er til samgöngustefna hjá fyrirtækinu? Fáið þið hvetjandi fræðslu um ágæti hjólreiða til samgangna?